Blonds have more fun!!;)
06.05.2006 14:55:17 / sossa

Flutt, búið bless!!

Já, ákvað að breyta til, kíkiði á mig á

www.sossa.bloggar.is

hlakka til að sjá ykkur knús knús


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 09:42:35 / sossa

smá til gamans....

1.     Aldrei í lífi mínu:mun ég sætta mig við minna en ég vil!!

2.    Þegar að ég var fimm ára: Gövöð, ég var sjúklega frek, ákveðin og með einstaklega sérstakann hlátur...og háværann!!    

      3.     Menntaskóla árin voru: snilld...minnir mig, man ekki mikið eftir tveim síðustu          vegna sérbruggaðs kívívíns;)

4.      Ég hitti einu sinni: Herbert Guðmunds, móðgaði hann hrillilega með því að biðja um “æi, þarna eina lagið sem hefur verið frægt eftir þig” kræst!!

5.      Einu sinni þegar ég var á bar: eyddi ég alltof alltof miklum pening...þrátt fyrir að það væri frír bjór...ekki alveg búin að fatta enn hvernig!

6.      Síðastliðna nótt: dreymdi mig draum...:)

7.      Næsta skipti sem ég fer í kirkju: vil ég að fólk klappi fyrir mér J 

8.      Þegar ég sný hausnum til vinstri sé ég: hillur, fullar af möppum með námsefni allt frá 8. bekk til vorönn 2006...skipulagsfrík!!!!

9.      Þegar ég sný hausnum til hægri sé ég: vegg, hvítur og einskaklega vel hannaður 

10.  Þegar ég verð gömul/gamall: ætla ég að vera ung í anda...eiga smá pening til að gera allt sem mig langar til að gera!

11.  Um þetta leyti á næsta ári: verð ég að öllum líkindum að lesa fyrir próf....eða gera eitthvað annað þegar að ég á að vera að lesa fyrir próf....hummm...líkt og núna J

12.  Betra nafn fyrir mig væri: kræst, nú veit ég ekki....

13.  Ég á erfitt með að skilja: hvert peningarnir mínir fara...!!!

14.  Þú veist mér líkar vel við þig ef: ég tala við þig, brosi til þín J 

15.  Fyrsta manneskjan til að eignast barn í þínum vinahóp væri:  Jaaaa, þú meinar....ég held að Ninnan eigi eftir að taka þetta....hún er fyrst með allt!!:)

16.  Farðu eftir ráðum mínum: Hafðu gaman að lífinu, aldrei segja ég get ekki....gerðu allt sem er óskynsamlegt en skemmtilegt því allar aðrar skuldbindingar eru seinni tíma vandamál!

17.  Uppáhalds morgunmaturinn minn er: a-b mjólk með múslí....fæ ekki nóg af því!

18.  Afhverju myndir þú hata mig: ef þú ert leiðinleg/ur, kemur illa fram við aðra, sjálfselsk/ur...

19.  Ég myndi stoppa mitt eigið brúðkaup: ef að ég fattaði allt í einu að þetta væri ekki hinn rétti gaur...

20.  Ég myndi frekar sleikja svínsrass en að: játa mig sigraða...einstaklega tapsár!!

21.  Bréfaklemmur eru nytsamlegri en: svona dæmi til að hjálpa manni að brjóta saman boli....common fólk!!!!

22.  Ef ég geri e-ð vel, er það: yfirleitt eitthvað sem ég er búin að skipuleggja vel, plana, gera möppu, merkja allt sérlega vel með besta vini mínum, post-it...þið vitið svona gulum og sætum;)

23.  Myndir sem þú fellir tár yfir eru: það væri auðveldara að fara yfir þær myndir sem að ég fell ekki tár yfir....einstaklega mikill tárfellari....

 

 

Kvittiði síðan fyrir komuna....lufsurnar ykkar:):):)


» 16 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 11:50:01 / sossa

sjúddirallirei!!

Jiiii minn, ég er ekki alveg að nenna því að fara í próf sko!!! Er sjálfsagt sú eina;)

 

 



Ég sótti þau gömlu á flugvöllinn á sunnudagsmorguninn...klukkan 6:00...um morguninn!!!!!!  Það var hinsvegar bætt upp svefnleysið með buxum, skóm og fullt af dóti, skartgripum frá Stellu og sonna, takk Stella mín!!! Nú er ég sko alveg bling bling yfir lærdómnum;) Þau gömlu voru alveg í skýjunum yfir ferðinni, þreytt og vildu bara komast heim, svo þau stoppuðu nú stutt hjá mér í þetta skipti!!

 

 



Lærdómurinn gengur bara ágætlega, ég er að verða svolítið stressuð yfir því hvað ég er ekki stressuð!! Ég sef bara ágætlega á nóttunni og sonna sem að ég er nú ekki vön í próftíð! En ég held að það sé rétt sem að Hildur segir, maður er bara að verða svo vanur að taka próf í háskólanum að maður veit hvað megi búast við og hvað ekki. Ég held að ég sé bara mjög vel undirbúin fyrir prófið á morgun, sem er ofbeldi og vanræksla í fjölskyldum.....það kemur svo bara í ljósJ

 

 



Það er hins vegar alveg yndislegt veður þessa dagana og mig klæjar í puttana að fara eitthvað út að rölta...en við Hildur tökum okkur stundum pásu frá lestrinum og förum í smá göngutúra, merkilegt hvað það er æðislegt, maður kemur alveg endurnærð heim!

 

 



Það eru sem sagt próf hjá mér 2. 6. 11. og 15 mai....og svo mun ég bara drífa mig að pakka niður og flytja yfir sumarið á gömlu vík....gövöð hvað ég get ekki beðið!!!! Samt, ég er sko búin að plana mikið, en í þeim plönum er yfirleitt ekki tekin vinnan inn í myndina, ekki heldur sú staðreynd að ég muni búa hjá mömmu og pabba og því verða ekki alveg eins mörg partý og planað er, líka er BARA gott veður í öllum plönunum....vonandi verður samt gamanJ

 

 



Jæja, best að fara gera eitthvað meira af viti, þið vitið;)

 

 



Kveðja Sossa sílesandi!


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 12:14:06 / sossa

Nau nau, hvað var þetta??? Rúm vika??

Já ég veit, ég hef akkúrat enga sjálfstjórn!!!!!!! Verð að blogga!!!

 

Verð þó að vara ykkur við sko, ég hef ekki mikið að segja, bara búin að vera að lesa fyrir próf og svoleiðis. Ég hef ákveðið að halda mig sem mest inni í próftíðinni, ég er nefnilega stórhættuleg á þessum tíma árs. Það sem óhemjumikið stress og afskaplega lítill svefn og óhófleg neysla koffíns einkennir þessa tíma þá hef ég átt það til að gera hina ýmsu furðulegu hluti og tók því þá ákvörðun að fara ekkert út...nema í fylgd!  Ég hef nú sagt ykkur frá því þegar að ég gleymdi bílnum mínum í Odda og kom út úr íbúðinni minni og sá hvergi bílinn og var þess fullviss um að honum hefði verið stolið....sem betur fer fattaði ég þetta rétt áður en að ég hringdi á lögregluna!!! Nú, svo er það náttúrulega óborganlega sagan þegar að ég keyrði upp á gangstéttinni...grunlaus um að þetta myndi kallast gangstétt. Ekki búið enn, einu sinni fór ég út úr húsinu og sá að bíllinn minn var búinn að renna úr bílastæðinu og næstum því inn í 10-11...vá hvað ég skammaðist mín fyrir það að setjast upp í bílinn og færa hann!!!!!!! Ég gleymi hlutum og verð afskaplega rugluð í rýminu...frekar mikið kraftaverk að mér hafi aldrei gengið sérlega illa á prófunum!!!

Hófí vinkona átti afmæli þann 27. apríl, ég óskaði henni til hamingju með afmælið í gær þann 27, en þá hélt ég að það væri kominn 28. apríl...stundum svolítið ruglingslegt þetta dagatal!!!!

 

Annars er bara allt gott að frétta! Mamma og pabbi koma í fyrramálið úr ameríkunni...og ég fer að sækja þau....ef þið trúið farið með bænir! Hlakka nú smá að fá þau gömlu...og sjá hvað þau keyptu....handa mér...tíhí!

 

Ég er búin að vera að reyna að skipuleggja sumarið...eða ég og Hildur svona í sameiningu og það verður víst eitthvað minna sem verður hægt að vinna í sumar, en þetta er það sem ég ætla að gera í sumar:

 

v      Labba upp á Húsavíkurfjall, já ég og Hildur erum sko búnar að plana það.

v      Labba upp á Þorgerðarfjall, fjall sem er í Aðaldalnum, og Hildur líka sko!

v      Rölta inn Þeyjandadalinn, við Hildur aftur! Ég held að það verði algjör snilld, þetta er sko eyðidalur...úúúúú.

v      A.m.k ein útileiga, ef ekki tvær!

v      Svaka partý hjá mér þann 7. júlí, þá verð ég 23 ja ára...svona fullorðins jú nó! Herdís frænka verður í bænum og svo ætlar Helga að koma líka....á eftir að spjalla við mömmu og pabba um húsnæðislánið yfir þessa helgi....hummm.....

v      Svo bað ég yfirmann minn um að vinsamlegast ekki setja mig á vakt um verslunarmannahelgina, ég hef aldrei verið í fríi yfir verslunarmannahelgi, og ekki Hildur heldur svo nú ætlum við að fara til eyja...áður en við verðum orðnar of gamlar!!!!

v      Svo ætla ég auðvitað að skreppa svo sem eina ferð suður...

v      Svo ætla ég í lok ágúst að kíkja í heimsókn til Stellu...og Hildur er að spá í því að koma með....bara frjööööör!!! Við ætlum að reyna að fara til Iowa city og kíkja á háskólann “minn”.!!

 

Ef ég þekki mig rétt þá eiga þessi plön sjálfsagt eftir að breytast.....

 

Best að hætta að hugsa um sumarið, fá sér kaffi og halda áfram að lesa fyrir Ofbeldi og vanrækslu í fjölskyldum...

 

Sossa í sumarskapi!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 14:01:14 / sossa

Pásu pjása!!!!

Jæja, kæru lesendur, smá áríðandi tilkynning!!

 

 



Ég ætla að taka mér smá hlé í skriftum mínum hér á síðuna til óviss tíma, ástæðurnar eru margar, andleysi og annir hafa mikið um þá ákvörðun að gera!

 

 



Það er svo mikið sem að ég er að spá og spegúlera í þessa dagana, þessi Danmerkurferð hafði greinilega mikil áhrif á mig og ég veit að ég verð alveg friðlaus þangað til að ég er flutt út fyrir landsteinanna, ég verð að prófa!!!!!!!!

 

 



Það sem komið er á stefnuskránna hjá mér er að fara í svokallað skiptinám. Ég er búin að finna skóla sem gæti hentað mjög vel sem er með svoleiðis prógramm, en það er University of Iowa, sem að ég ætla mér að sækja um.En ég færi þangað bara haustið 2007. Þarf því að fara í TOEFL – prófið í sumar, en það er nú bara gaman að því. Ég verð því um 3ja klukkustunda keyrslu frá Stellu!

 

 



Fyndið hvað litlir hlutir eins og að fara í smá ferðalag, ekki lengra en til Danmerkur getur breytt miklu í lífi manns, sýn manns, og væntingar úr lífinu. Þótt það hafi verið yndislegt að koma heim í litlu íbúðina, þar sem að beið mín bréf og páskaegg frá mömmu og pabba, þá leið mér ekki vel.  Andrúmsloftið var bara ekki rétt, ég fékk vonda tilfinningu svona “hvern fjandan er ég að gera?” tilfinningu, sem sjálfsagt sumir hafa fengið í gengum lífstíðina! Svona “bíddu, er þetta allt??” tilfinningu, ég get ekki útskýrt það betur!

 

 



Svo að það eru miklar breytingar framundan....vonandi, og mikið að gera! Prófin eru framundan, flutningur norður, vinna í Hvammi, sækja um í háskólann úti, redda húsnæði...maður þarf víst að vera snemma í því, læra fyrir TOEFL prófið. Ég mun taka ba námið á 2 og hálfu ári í staðinn fyrir 3 þannig að næsta önn verður mjög strembin, því ég verð þá í raun og veru að taka næstum 2 annir í stað einnar. Allt að gerast, mikið skipulag og plön hjá mér þessa dagana!

 

 



Hafið það ofsalega gott, nú sem endra nær!!!

 

 



Sossan sem er afar bissi að skipuleggja þessa dagana!


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 23:07:30 / sossa

GRENJ, VÆL, SKÆL, ORG, GARG, HÁORG!!!!!!

Ojjjjjjj, komin heim. Langaði bara ekkert að koma heim. OOJJJJJJ bara og ullabjakk!!!! Vil ekki skil ekki og get ekki!!!! OHHHHH, nenni þessu ekki heldur!!!!

Komið á hreint, ég verð ekki mikið lengur hér á landi, alveg segi það og skrifaða!!!!

Já, og þau ykkar sem viljið fá ferðasögu, þá gerðist svooooo margt í útlandinu, eina sem ég get sagt er "það sem gerðist í Danmörku, geymist í Danmörku" , þannig er nú það;)

Herdís mín, takk æðislega fyrir mig, það var alveg yndislegt að vera þarna hjá þér!

Sossa, agalega pirruð!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 13:35:13 / sossa

Jeg elska DK!!!!!

Lesið reportið hjá Helgu frænku á síðunni hennar, nenni ekki að skrifa:):)

Knus og kram,!!! Sossa


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 11:23:21 / sossa

Frk Myndaleg!

Allt að gerast!!

 

 



Ég er búin að fá leigjendur í íbúðina í sumar, er sko að áframleigja, bannað, sem gerir það svo skemmtilegt. Það eru nokkrar finnskar stúlkukindur sem munu dveljast í snúsilegu íbúðinni minni, þær heita allar alveg svakalega fyndnum nöfnum og tala svakalega fyndna ensku, hef ofsalega gaman af þeim, svona er þetta!

 

 



Hey, ég ætlaði líka að segja ykkur það að ég er búin að kaupa mér myndavél, ógeðslega flotta, ég ætla að kalla hana Frk Myndaleg, hún er svo sæt og svo sagði kallinn í búðinni að hún væri best, ég get sko alveg trúað því! Ég og Helga vinkona, frá Húsavík, ekki frænka, fórum þarna inn, í BT, og ég ætlaði bara svona að skoða, ég nefnilega sakna ofsalega mikið myndavélarinnar sem var stolið af mér í sumar! Helga náttla, litla VÍSARAÐ-villidýrið, skellti sér strax á þessa myndavél, held að það hafi nú eitthvað að gera með að hún hafi verið líka svakalega skotíní VÍSARAÐKNOWITALL- afgreiðslugaurnum. Ég á hinn boginn er svolítið lík foreldrum mínum, ég stekk ekkert á hlutina og vil heldur borga allt út í hönd, þess vegna upphófust miklar vangaveltur hjá mér, og ég spurði aumingja afgreiðslugaurinn hinar ýmsu spurninga (hver annari fáranlegri), meðan að Helga, VÍSARAÐ-villidýrið ranghvolfdi augunum! Það endaði svo með því að gaurinn var orðinn (að ég held) frekar svona nett pirraður á mér þannig að hann gaf mér afslátt, og svo svaka afslátt á minniskorti (það tók nú bara ca korter að ræða það “og hvað þýðir það margar myndir sem að ég get geymt?” “hvað er maður að taka margar myndir ca á kvöldi? “). Ég held að ég hafi verið all svakalega skemmtileg! En það endaði með því að ég keypti mér í fyrsta skipti eitthvað á VÍSARAÐ, og nú frekar ánægð með það, og ánægð með mína myndavél, Frk Myndaleg!

 

 



Jæja, best að skúra, m&p eru að koma, ég þarf að kaupa páskaegg handa Herdísinni minni, ég á eftir að pakka niður, reyndar líka að þvo fötin sem að ég ætla að pakka niður, er svo að fara í fermingarveislu í dag og vonandi að hitta Brynhildina mína í kvöld  svo bara út í fyrramálið...........og bíddu, hvað í anskotanum er ég svo að gera að vera að skrifa hér, enginn tími í svona rugl!!!

 

 



Ég skal taka fullt af myndum á Frk Myndaleg, verst að ég get ekki tekið mynd af henni, en ég ætti að geta tekið um 350 myndir ca á kortið, og maður er víst að taka um 20-50 myndir á einu kvöldi ca, svo þetta verður gaman!!

 

 



Skrifa svo þegar að ég kem heim, knús knús, Sossa & Frk Myndaleg


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 11:42:16 / sossa

Köben eftir 3 daga, 3 daga beibíííí!!!!

Smá change of plan, við Helga förum út á sunnudaginn,  ekki mánudaginn bara betra!!;)

Ég hlakka ekkert smá til að fara, þetta verður algjör snilld, gott að komast úr þessari verkefnavinnu og fara í frí, frí, frí, slökun og sötra bjór, sötra fullt af bjór!!:)

 

Súberkokkurinn hún Helga með úbersamböndin er búin að redda einhverju svaðalegu dæmi á einhverju kokteilbar sem að einhver kokteilmeistari mun blanda okkar drykki (þýðir ekkert minna) og svo svaka VIPdæmi á klassa veitingastað, ekki leiðinlegt það, að láta stjana við okkur eins og drottningarnar sem við erum! Díses, í hverju á ég að vera????  

 

Ein spurning, hversu oft skrifaði ég “dæmi” hér á undan??

Þannig að ferðaplanið er þannig að við förum út til Köben á sunnudag, verðum þar í góðu yfirlæti á hóteli, og hinum ýmsu veitingastöðum heyrist mér, þangað til á miðvikudag, og þá förum við með lestinni til Billund til að knúsa hana Herdísi frænku og verðum hjá henni í viku, úff, aumingja hún!! :haha:

 

Djammm, djammm, djammm, djAmmmmmmm, jibbý!!

 

Heyri í ykkur þegar að ég kem heim! Ég verð ekki með myndavél en Helga er búin að lofa að vera dugleg að taka myndir þannig að fylgist með á hennar síðu!!

 

Hafið það gott, já, og gleðilega páska, Sossa

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 10:38:20 / sossa

Rúfus 7 ára!

Anton Ísak Solis!

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Rúfus minn, hann á afmæli í dag!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Elsku Rúfus minn, ég vona að þú eigir góðan og skemmtilegan afmælisdag og fáir fullt fullt fullt af pökkum! Pakkinn frá mér kemur með ömmu og afa eftir nokkra daga!

Ég gæfi allt til að geta verið hjá þér á afmælinu, en verð bara að senda þér kossa og knús í staðinn!

Kveðja Soffía frænka! tia Soffía;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 16:45:09 / sossa

Hér er hóll, um HÓL

Stundum stöndum við í þeirri trú um að samskiptahæfileikar okkar séu bara nokkuð góðir og að við höfum masterað allar þessar óskráðu en mikilvægu reglur í samskiptum við annað fólk.

....ég líka...

En um daginn benti ein, yndisleg manneskja mér á einn galla í mínu fari. Galli sem að ég hafði ekki hugmynd um að ég hefði, en það voru nokkrar manneskjur sem tóku undir hennar ábendingu við mig. Ég kann ekki að taka hóli, ég virðist ekki hafa lært þá listgrein sem er að taka hóli á réttan hátt. Það er ekki það auðveldasta að ég held, allavegana svona eftir á að líta, ekki fyrir mig. Það er viss list að kunna að þakka fyrir hól og lof  í manns garð, án þess vera of viss í sinni sök um sitt ágæti, því þá yrði það nú bara mont.

 Ég hins vegar kann ekki að taka hóli, þess vegna virðist ég bara annað hvort:

  1. brosa
  2. eyða umræðunni
  3. labba í burtu.

Þetta virðist hafa gengið ágætlega í gegnum árin, þangað til að þessi manneskja (sem að ég er endalaust þakklát fyrir) benti mér á að þetta væri nú hálfgerður dónaskapur, og af sjálfsögðu er þetta það, ekkert annað.

Þetta var þannig að ég labbaði inn og manneskjan sagði “ofsalega ertu brún og sæt, mér finnst þú vera alltaf svo sæt”. Ég, eins kindaleg og ég get nú orðið, brosti, og beið í smá stund þangað til að þögnin var orðin óbærileg og fikraði mig svo hægt í burtu. Þá var mér bent á þetta. Þetta var af sjálfsögðu óttalegur dónaskapur af minni hálfu, eftir að hafa fengið svona yndislega umsögn. En mér finnst alveg svakalega óþægilegt þegar að það er verið að hæla mér (fyndið orð, að hæla). Hvað á maður að gera, segja “já, takk fyrir” eða “takk, sömuleiðis” en einhvern veginn finnst mér það missa marks þegar að maður hælir manneskjunni aftur til baka, svona þú varst góð við mig, ég skal vera góð við þig dæmi.

En ég er samt ofsalega ánægð að þessi yndislega manneskja, eins og áður sagði, hafi bent mér á þetta, ég held að við ættum að vera duglegri að benda öðru fólki þegar að það brýtur vissar óskráðar reglur, gæti verið að þau hafi einfaldlega ekki tekið eftir smáa letrinu.

 Nú segi ég sko takk, gef mitt stærsta bros:haha::haha: þegar að mér er hælt, og segi svo eitthvað fallegt við manneskjuna að smá tíma liðnum....ég held að það ætti að vera allt í lagi, er það ekki??

 Hafið það nú svakalega gott snúllurnar mínar, kv. Sossa síbatnandi

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 14:05:14 / sossa

Frábær föstudagur!

Vá, sjáiði bara hvað ég er dugleg að skrifa ha! Nú verðið þið að vera dugleg að kvitta, samþykkt??

 

Það veitti mér óskaplega mikla gleði að komast að því að tíminn í aðferðarfræði detti niður í dag, ofsalega gaman! Ég hugsaði gott til glóðarinnar, hafa smá letidag, þar sem að ég er búin að vera ofsa dugleg í vinnunni, skólanum og líkamsræktinni. En það var svo gott veður svo að ég ákvað að skokka aðeins í Nauthólsvikina, ég gat nú alveg skellt líka í eina vél og látið hana þvo fötin mín á meðan ég væri á skokkinu. Nú, þegar að ég kom heim, fór ég í sturtu, nauðsynlegt, en gat ómögulega slappað af, svo að ég fór að þrífa, borga reikninga og fleira gotterí sem að maður gerir í lok hvers mánaðar.  Þannig að letidagur minn fór fyrir lítið, er líka að fara að vinna í kvöld, fjör fjör!

 

Ég gerði líka svolítið sem að ég hefði átt að vera búin að gera fyrir svolitlu síðan, taka til í fataskápnum. Ég ákvað að taka öll þau föt sem að voru orðin of stór, var ofsalega gaman að fara í smá “dress-up”, byrjaði að setja þau föt sem ekki þóttu sitja rétt á líkamanum í poka, og annan poka, og annan....þá ákvað ég að kaupa mér ruslapoka! Til að gera langa sögu stutta þá er ég hérna með tvo troðfulla ruslapoka af fötum sem ekki passa lengur! Og fataskápurinn er gjörsamlega galtómur, hef aldrei átt svona tómann fataskáp. Verð að viðurkenna að ég sakna fatanna ansi mikið, ég er svolítið fatafrík verð ég að viðurkenna, ég elska föt, ég elska fötin mín!! Ég verð bara vera dugleg að versla mér ný föt, sem mér finnst heldur ekkert leiðinlegt, verst bara að þau kosta pening!

 

Mamma og pabbi eru að koma næstu helgi, sem útskýrir þennan svaka þrifdag minn, þótt að ég viti að ég muni þrífa aftur áður en þau koma! Ég tók svona “skápaþrifogskipulagsdag” þar sem að ég þekki móður mína ansi vel og ég veit að hún mun kíkja í alla skápa til að athuga hvort þar sé allt í röð og reglu, og hreint! Hún er náttla engum lík, það er alveg öruggt. Þegar að þau komu í heimsókn eftir að ég flutti á garðana, þá kom hún inn, og sagði, “mikið ofsalega er hreint og fínt hjá þér” og ég hugsaði með mér “jesss, haha, hún finnur sko engann skít hér”. Ég fór svo út að hjálpa pabba með töskurnar, þegar að ég kom inn var mamma inn á baði, að skrapa einhvern (ímyndaðann) skít í kringum blöndunartækin....MEÐ HNÍF!!! Hún leit á mig og sagði “ æi Soffía mín , ekki skamma mig, ég varð”. Ég gat nú ekki annað en hlegið af henni elskunni.

‘Eg vil þó benda á það að hún er ekki mikið svona heima, ég held að hún sjái bara betur skítinn í öðrum húsum, svo er hún eitthvað voðalega hrædd um að ég sé ekki með allt hreint og fínt, veit ekki alveg af hverju, ég er enginn sóði.

 

Ein góð saga af mömmu (eins gott að hún kann ekki á netið, hún myndi missa sig ef hún vissi af þessu), þegar að ég var 18 ára og nýflutt að heiman í kommúnu á Ak, með misjafnlega gáfuðu liði. Eða misjafnlega dópuðu liði, frekar. Allavegana, þá fór ég til Húsavíkur eina helgina og það var “óvart” brotist inn í herbergið mitt, en engu stolið. Ég sagði mömmu hvað hafði gerst og þá heyrðist í gömlu “jiiii, Soffía, og var allt í drasli hjá þér??” Ég hló með sjálfri mér, og langaði mikið að segja við mömmu “ já, uppdópaði gaurinn, braust inn, en þegar að hann sjá ALLT draslið þá hljóp hann út” en sleppti því af góðri ástæðu!;)

 

Jæja, nóg komið af sögustund, skiturinn þrífur sig ekki sjálfur (langar samt mikið að athuga hvort að hann nái ekki bara að labba í burtu eftir nógu langan tíma).

 

Eigiði góða helgi snúllurnar mínar, Sossa síþrifna!  


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 01:44:20 / sossa

Er allt að verða vitlaust eða hvað???

Það er svo skrýtið með það að mér líður alltaf hálfilla ef að það eru nokkrir dagar á milli færslna hjá mér, ég held að það sé af því að ég gjörsamlega þoli ekki þegar að aðrir láta líða heilu mánuðina á milli færslna. Það er spurning hvort að það sé nokkuð verra en að vera að reyna að tína saman eitthvað til að segja, tilgangslausa hluti sem kannski enginn nennir að lesa, spurning!

 

Það er búið að vera frekar rólegt hjá mér undanfarna daga, það er að segja á félagslega sviðinu. Það er hins vegar alltaf brjálað að gera í skólanum og einnig vinnuni, er t.d. á næturvakt núna, og var líka síðastliðnu nótt og hélt svo fyrirlestur í morgun í skólanum, ég vona að hann hafi verið í lagi, þótt að ég haldi að ég hafi dottað á milli setninga! Svo er ég á kvöldvöktum á morgun og hinn, eða eiginlega í dag og á morgun, tæknilega séð! Svo er allt á fullt í ritgerðunum, en ég hef furðu gaman af að skrifa ritgerðir svo að þetta er nú í lagi. Svo eru eiginlega öll kvöld upptekin í næstu viku þar sem að vinna og námskeið hjá Rauða Krossinum í áfallahjálp munu taka tíma minn, en svo eru Helga og Brynhildur að koma næstu helgi, ég vona að þær geti nú aðeins kíkt á mig,  einnig mamma og pabbi, ferming hjá Ingibjörgu frænku á laugardeginum og svo er bara verið að fara út til Danmerkur á mánudeginum! Ótrúlegt hvernig þetta getur raðast upp svona skemmtilega!

 

Eins og ég skrifaði hérna áðan þá hefur heldur lítið verið að gerast á félagslega sviðinu hjá mér, eins og árið byrjaði nú  með trompi! Þau ykkar sem lesa bloggið þá vitiði sjálfsagt um heitið sem að ég strengdi hér fyrir um mánuði síðan, þrátt fyrir að það sé nú fallið niður, hefur verið ansi líflaust deitlífið hjá mér, sem er mjög gott að mestu leyti. Ég viðurkenni að það var orðið ansi skuggalegt hjá mér á tímabili, og sumum var orðið um og ó...kannski mest ég sjálf...

 

Það sem að ég sakna mest við að vera að deita einhvern er spenningurinn í kringum þetta allt saman! Spjalla um við vinkonurnar um hann, skilja aldrei símann eftir nein staðar...ef hann skildi hringja eða senda sms, fara út saman, haldandi hönd í hönd....kossar...já, alltaf gaman að kyssa....

....og svo kemst maður að því af reynslunni að hann er hálviti...nei, kannski of biturt, eða að hann sé kannski ekki það sem maður var að leita að, lúsablesar eru ekki það sem ég er að leita að...

 

En yfir höfuð er gaman að deita, sérstaklega einhvern sem að maður var bara að kynnast, ég hef lúmskt gaman af þessari stressblandinni feimni, og auðvitað að kynnast högum og háttum manneskjunnar (sem er í mínum tilvikum alltaf karlkyns btw).

 

Ég man eftir einu tilviki (gövöð hvað þetta hljómar eins og ég sé gömul) þegar að ég var bara rétt að kynnast einum strák. Við höfðum hist á djamminu (það gerist) og hann fékk símanúmerið mitt, mér  leist nú bara ágætlega vel á kauða og var því svaka spennt á sunnudeginum hvort að hann myndi nú hringja. Um kvöldið hringdi svo síminn minn og viti menn, karlkynsrödd á hinni línunni og upphófst mikið samtal. Við skemmtum okkur konunglega, töluðum um hversu feimin við höfðum nú verið þegar að við hittumst þarna og að við ættum nú að hittast aftur og þar fram eftir götunum. Við ákváðum að hittast á kaffihúsi kvöldið eftir, ég leyfði honum að velja.

Hann: hvað segiru með Kaffi Amor?

Ég: já, en er það ekki á Akureyri?

Hann: jú, akkúrat!

Ég: bíddu, býrðu ekki í Reykjavík?

Hann: nei, auðvitað ekki, við hittumst í Sjallanum!!

Ég: neeeee, við hittumst á Gauknum...hehe...er það ekki....

 Kom þá svona skemmtilega á daginn að hann hafði skrifað niður númerið vitlaust hjá gelluni sem hann hitti, og ég var svo handviss um að hann hafi verið gaurinn sem að ég hafði hitt, þetta var náttla bara fyndið!!:haha:

 

Þetta er ein af mörgum skemmtilegum sögum sem að ég hef safnað í gegnum tíðina, myndi segja frá fleirum ef að ég þyrfti nú ekki að fara að vinna í vinnunni minni!

Ég held áfram að vera bara pollróleg, já já, ekki spurning...

 

Hafið það rosa gott, kv. Sossa


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 11:18:29 / sossa

Er fjörið búið???

Er djammið búið? Er fjörið bara farið úr öllum  æðum? Er enginn í stuði? Eru flöskudagarnir úttaldir???....

 

 



...jaaa, það mætti halda það!!

Ég fór aðeins út með Hildi í gær, fékk mér einungis tvo bjóra! Þrátt fyrir frábæran félagskap Hildar, þá langaði mig bara heim, fara í flónel náttfötin, fá mér glas af hvítvíni (er að verða of mikil Bridget Jones),  kveikja á kertum, leggjast undir teppi, að horfa á mynd, borða smááááá nammi, fara snemma í háttinn og vakna snemma! Allt í einu fannst mér ógeðslegt að vera þarna inni í reykmettuðu loftinu, fólkið of hávært og sömuleiðis tónlistin, fullir karlmenn voru bara virkilega ósjarmerandi, og liturinn á veggjunum var ferskjulitaður, hafði aldrei tekið eftir því áður, klósettin voru vibbi og með ómöguleg að pissa í, bjórinn alltof dýr og svona mætti lengi telja!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Kannski var ég of edrú eða bara komin með ógeð á því að djamma, veit ekki alveg hvort!

 

 



Ég náði því að labba upp í Nauthólmsvík í gær, og aftur heim og aftur í Nauthólmsvík í gær í geggjuðu veðri! Var eiginlega bara á röltinu í gær má segja!

 

 



Best að fara læra í hausinn sinn, knúsið ykkur snúllurnar mínar,  kv. Sossa!

 

 



Úúúúúú, ps, ég er að spá í því að fara norður næstu helgi (fer eftir duglegheitum í lærdómnum), langar svolítið á vorfagnaðinn...kemur í ljós...kemur í ljós...


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 12:20:48 / sossa

Hallærislegt hallæri!!

Hallærislegt í það minnsta! Ég sit hér, ekki í neitt mjög góðu skapi, klukkan er orðin tólf og ég ætlaði að vakna klukkan níu, eitthvað fór það nú úrskeiðis! Ekki það að ég hafi átt að mæta í skólann, nei, ég ætlaði bara að vera dugleg að læra áður en ég færi í skólann klukkan 1, djööö!

 

 



Ekki halda að þetta sé svona blogg sem að ég segi gjörsamlega frá öllum smáatriðum frá vakningu til svefns, en þetta er bara búinn að vera svooo öfugsnúinn morgun!

 

 



Já, ég sit hérna í innilega hallærislegum náttfötum, þau eru bleik, flónel, með fullt af ísbjörnum á (þið vitið, svona einhleypingsnáttföt!). Mér var kallt á táslunum svo að ég fór að leita af sokkum, fann um 15 sokka....en enginn þeirra eins...hvernig er þetta hægt!!!???!!!???? Af hverju týnist alltaf bara annar sokkurinn, geta aldrei bara heilt par horfið og skilið annað heilt par eftir, fyrst að þau þurfa endilega að vera að þessu!!!

Þess vegna er ég nú hér, í bleiku flónel ísbjarnanáttfötunum mínum, og í einum bleikum sokk og einum grænum...getnó!!!

 

 



Stundum er öll vitleysan svipuð, ég ætlaði að fá mér morgunmat, ummm ab-mjólk með múslí! En til að fullkomna þennan rétt verður að vera ein skeið af púðursykri, alveg nauðsynlegt! Nú, púðursykurinn var af sjálfsögðu allur harður, og ég reyndi mitt besta að reyna að brjóta úr honum, en ekkert gekk!! Nú, ég veit að brauð mýkir upp púðursykur, en það sem brauð er á bannlista hjá mér (reyndar púðursykur líka, hellú, maður verður að velja og hafna!) henti ég púðursyknum, en ætla mér nú að fjárfesta í öðrum poka....þegar að ég hlussast úr náttfötunum!!

Nú, þarna varð ég nú að skilja við ab-mjólkina, því hún verður ekki étin án púðursykurs!

En það var nú ekki öll von úti enn með morgunmat góða fólk, nei, því ég á alltaf nóg af cheeriosi, jámm!!

Skellti cheeriosi í skál, glöð í bragði, vongóð um að dagurinn yrði ágætur eftir allt saman! Hellti mjólkinni út á....ojjjjjj....það kom bara glært og svo hvítir köglar iiiijjúúúúu!!! Kannski kominn tími til að kaupa nýja mjólk...hugsanlegt!!!

 

 



Þannig að góða fólk, hér sit ég, í bleiku flónel náttfötunum með ísbjörnunum á, í einum grænum sokk og einum bleikum, japlandi á þurru cheeriosi og vatnsglas í hinni (átti ekki til kaffipoka, svo það er ekkert kaffi), alvarlega að hugsa um að skríða upp í rúm og gleyma þessum degi, byrja svo föstudaginn með trompi!!!

 

 



Kveðja sossan í hallærinu!


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9